Hundurinn fékk að fara með í þessa ferð, eða öllu heldur tók ég hann með, því hann vill helst ekki fara upp í sendibílinn hjá mér. Lét ég hann ekki fara inn í húsið þegar ég var að mæla upp og ætlaði hann svo sem alveg vitlaus að verða að fá ekki að fara inn líka. Og fékk útihurðin að finna fyrir því. En það leið hjá og ég kláraði mitt verk, sem var ekki mikið og tók stutta stund. Þegar ég var að fara er hringt dyrabjöllunni.